kajakferdir@gmail.com
+354 6952058 or 8689046
Email :
Fjölbreytt ferð á vatni, á og sjó.
Róið eftir Löngudæl, inn í þröngar rásir fenjasvæðisins og allt að þar sem Hraunsáin rennur til sjávar. Farið er niður Hraunsá og skapar það oft skemmtilega stemningu, tekið er stutt stop áður en haldið er út á sjó þar sem sjórinn tekur á móti okkur með sýnum sjávarföllum. Siglt er á milli skerjagarðanna með fallegum lónum þar sem heimkynni sela og fugla er.
Endað er við hina sögulegu Stokkseyrarhöfn.
Lögð er áhersla á að fólk haldi sig nærri landi með leiðsögumanni. Stórkostleg upplifun!
ATH! MÆTING 15-20 MÍN FYRIR BROTTFÖR
Tímabil : 1.Maí – 30.September
Brottför : kl 10.00 og 14.00
Lengd ferðar :2 – 2 1/2 klst.
Innifalið : Kayak, kayakfatnaður, vesti, og leiðsögn
Lámark : 4 manns
Hámark : 30 manns
Aldurstakmark : 14 ára