Um okkur

Stokkseyri er sjávarþorp við suðurströndina í u. þ. b. 55 km. fjarlægð frá Reykjavík ef farið er um Þrengsli og yfir Ölfusárósa. Fjöldi íbúa er nálægt 550 manns, en í eina tíð var þar fjölmennasta sveitarfélag landsins. Síðan var því skipt niður í tvö sveitarfélög Stokkseyrarhrepp og Eyrarbakkahrepp. Íbúar þorpsins hafa gætt umhverfisins einstaklega vel og þar þrífst litríkt og fjölbreytt fugla- og jurtalíf í kringum vatnasvæði, sem þar er, og einnig í fjörunni, sem rómuð er fyrir fegurð sína og myndaðist við mesta hraunrennsli sem orðið hefur í heiminum eftir ísöld, þegar Þjórsárhraun varð til.

Í sjóferð

Kajakaferðir ehf. bjóða upp á nýstárlega möguleika til náttúruskoðunar. Róið er á kajökum um hin sérkennilegu lón einnar fegurstu fjöru sem Ísland á og vatnasvæðið vestan byggðarinnar á Stokkseyri. Þar tengja þröngar rásir litlar og stórar tjarnir og þrífst þar aragrúi og fugla og jurta. Þar endar líka Flóaáveitan, þetta stórmerkilega mannvirki, sem unnið var á árunum 1918 til 1927 og nær yfir 12 þúsund hektara lands. Gengið hefur verið úr skugga um, í samvinnu við aðila úr Fuglaverndunarfélagi Íslands og Náttúruverndarráði að þessi leið til náttúruskoðunar raskar á engan hátt tilveru dýra og jurta á svæðinu. T.d. má sjá forvitna seli fylgja kajökunum eftir þegar siglt er á lónunum, ótrúlega nálægt, alls óhrædda.

Fyrir utan þessa óvenjulegu leið til að skoða náttúruna eru kajakasiglingar sérlega friðsæl og skemmtileg afþreying, reynsla sem gleymist ekki. Það skal tekið fram að sérstök áhersla er lögð á öryggisþáttinn; við erum eina kajakaleigan á landinu sem notum eingöngu "Sit-on-top" kajaka, sem eru öruggustu kajakar sem völ er á og hafa á undanförnum árum náð miklum vinsældum t.d. í Bandaríkjunum og víðar. Þeir eru einnig notaðir við björgunarstörf erlendis.

Bátaflotinn okkar tekur 50 manna hóp í ferð. Boðið er upp á ýmsa möguleika í ferðum fyrir hópa, fjölskyldur og einstaklinga. (Sjá ferðir.)

Sérstaða

Umhverfisvæn ferðaþjónusta: Engin hávaða- eða loftmengun. Raskar ekki lífríkinu. Góð hreyfing. Náttúruskoðun. Hentar jafnt hópum sem einstaklingum. Vatnasvæðið er mjög sérstakt, minnir helst á fenjasvæði. Fjaran og skerjagarðurinn er friðlýst náttúruvætti. Svæðið er allt rómað fyrir einstaka fegurð. Aðeins um 45 mín. akstur frá höfuðborginni. Kajakleigan tekur á umhverfismálum af festu og hefur mótað sér umhverfisstefnu og sett sér markmið sem höfð verða að leiðarljósi í rekstri fyrirtækisins. Staða og stefna Kajakaleigunnar í umhverfismálum er vottuð og tekin út árlega af BelugaMerki Beluga

Umhverfisstefna

Kajakaleigan á Stokkseyri mun með starfsemi sinni leitast við að hafa sem jákvæðust umhverfisáhrif. Eðli starfseminnar gerir það að verkum að um er að ræða eins umhverfisvænan rekstur og hugsast getur sem nær engin mengun þarf að hljótast af. Allt kapp verður lagt á að umgangast náttúruna af virðingu og meðvitund um þá staðreynd að starfsemi fyrirtækisins fer fram í einni helstu náttúrperlu Suðurlands, Stokkseyrarfjöru.

Stefnu þessari er fylgt með eftirfarandi stefnumiðum:

# Starfsmenn munu hvetja gesti til að ganga vel um og sýna náttúrunni virðingu og sóma.

# Fyrirtækið mun beita sér fyrir verndun á fuglalífi og gróðri á vatnasvæðinu gagnvart ofbeit og átroðningi búpenings.

# Aðstaða og umhverfi í kringum aðstöðusvæði fyrirtækisins verður haldið hreinu og snyrtilegu.

# Leitast verður við að hafa samstarf við þá aðila og þau fyrirtæki sem hafa skýra stefnu í umhverfismálum.

# Kapp verður lagt á að þjálfa starfsmenn til að tryggja öryggi farþega.

Markmið ársins 2010:

# Endurnýjun bátastæðis með það í huga að minnka troðning á grónu landi.

# Þjappa bátastæði og búningsaðstöðu saman svo auðveldara verði að standa að hreinsun.

# Hreinsa rusl af flóðasvæði. # Stuðla að Minkur verði veiddur á svæðinu til verndar á fuglalífi.

# Halda fundi með starfsmönnum um öryggi og umhverfismál. # Halda fundi með umhverfisdeild Árborgar vegna umhverfismála.

# Gera varanlega stíflu þar sem hægt verður með einföldum hætti að stjórna vatnshæð í Löngudæl og þar með vernda fuglalíf og fuglahreiður sem eru í hættu ef að vatnsyfirborð hækkar skyndilega.

Langtímamarkmið:

# Leggja kapp á vernda fuglalíf enn frekar og beita sér fyrir frekari umhverfisvernd á svæðinu.

# Sjá til þess að vatnasvæðið verði hreinsað eftir hvern vetur.